Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör 2. ársfjórðungs fyrir árið 2018 eftir lokun markaða fimmtudaginn 30. ágúst n.k.
Opinn kynningarfundur verður haldinn 31. ágúst n.k., klukkan 8:30 á Grand Hóteli í fundarherberginu Hvammur, Sigtúni 38. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.