Fjöldi farþega Icelandair í ágúst nam 523 þúsund og fækkaði þeim um 1% miðað við ágúst á síðasta ári. Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 3%, en framboðnum sætum fækkaði um 3% á milli ára. Skýrist munurinn af því að með auknu framboði til N-Ameríku hefur meðalfluglengd í km. aukist milli ára, eða sem nemur 6%. Sætanýting var 86,0% samanborið við við 87,9% í ágúst á síðasta ári. Í ágúst er sama þróun og undanfarna mánuði. Sala á áfangastaði í N-Ameríku hefur ekki fylgt framboðsaukningunni eftir á meðan að sala til Evrópu hefur verið mjög góð. Til samanburðar þá var sætanýting á leiðum Icelandair í Evrópu 90,8% og jókst um 5,8 prósentustig á milli ára á meðan að sætanýting á leiðum félagsins til N-Ameríku var 83,1% og lækkaði um 6,7 prósentustig á milli ára. Fjöldi farþega á heimamarkaðinum frá Íslandi og ferðamannamarkaðinum til Íslands jókst á milli ára, en dróst saman á N-Atlantshafsmarkaðinum.
Farþegar Air Iceland Connect voru tæplega 33 þúsund og fækkaði um 15% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 70,8% og lækkaði um 1,5 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 20% á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 6% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 14% á milli ára. Herbergjanýting var 89,9% samanborið við 88,6% í ágúst 2017.
ICELANDAIR | ÁGÚ 18 | ÁGÚ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 522.925 | 528.885 | -1% | 2.818.110 | 2.826.450 | 0% |
Sætanýting | 86,0% | 87,9% | -1,9 %-stig | 81,3% | 83,8% | -2,6 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.952,7 | 1.895,7 | 3% | 10.962,8 | 10.456,2 | 5% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 1.678,4 | 1.665,4 | 1% | 8.909,0 | 8.766,3 | 2% |
Meðal flugleið (KM) | 3.271 | 3.093 | 6% | 3.189 | 3.060 | 4% |
AIR ICELAND CONNECT | ÁGÚ 18 | ÁGÚ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 32.934 | 38.955 | -15% | 220.922 | 236.033 | -6% |
Sætanýting | 70,8% | 72,3% | -1,5 %-stig | 64,9% | 67,5% | -2,6 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 20,3 | 27,2 | -25% | 132,2 | 144,7 | -9% |
LEIGUFLUG | ÁGÚ 18 | ÁGÚ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | 100,0% | -9,1 %-stig | 93,1% | 97,1% | -4,0 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.940 | 2.442 | 20% | 23.293 | 17.594 | 32% |
FRAKTFLUTNINGAR | ÁGÚ 18 | ÁGÚ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.291 | 11.004 | -6% | 81.215 | 76.008 | 7% |
HÓTEL | ÁGÚ 18 | ÁGÚ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 44.149 | 38.786 | 14% | 275.128 | 260.866 | 5% |
Seldar gistinætur | 39.687 | 34.368 | 15% | 219.502 | 212.671 | 3% |
Herbergjanýting | 89,9% | 88,6% | 1,3 %-stig | 79,8% | 81,5% | -1,7 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010
Viðhengi