Nýtt skipurit HB Granda


Stjórn HB Granda samþykkti á fundi sínum í dag nýtt skipurit félagins. Verður skipulag félagsins einfaldara en áður og styður það við aukna áherslu félagsins á kjarnastarfsemi sína.  Nýtt starf framkvæmdastjóra verður til en það sér um botnfisk-, uppsjávar-, markaðs- og mannauðssvið félagsins. Fækkað verður í framkvæmdarstjórn félagsins og munu hana skipa forstjóri, fjármálastjóri og framkvæmdastjóri.

Ægir Páll Friðbertsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HB Granda. Hann er Cand. oecon frá HÍ og hefur lokið öllum námskeiðum í mastersnámi í fjármálum frá HÍ. Ægir Páll hefur í nærri tvo áratugi starfað sem stjórnandi eða ráðgjafi sjávarútvegsfyrirtækja en áður var hann lánasérfræðingur og viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka í níu ár. Undanfarin þrjú ár hefur hann gengt starfi framkvæmdastjóra Brims hf.

Í viðhengi er nýtt skipurit félagsins

Viðhengi


Attachments

Skipurit HB Granda