Fjöldi farþega Icelandair í september nam 427 þúsund og fjölgaði þeim um 1% miðað við september á síðasta ári. Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 3%. Sætanýting var 81,0% samanborið við við 81,1% í september á síðasta ári. Í september er sama þróun og undanfarna mánuði. Sala á áfangastaði í N-Ameríku hefur ekki fylgt framboðsaukningunni eftir á meðan að sala til Evrópu hefur verið mjög góð. Til samanburðar þá var sætanýting á leiðum Icelandair í Evrópu 84,9% og jókst um 5,4 prósentustig á milli ára á meðan að sætanýting á leiðum félagsins til N-Ameríku var 78,7% og lækkaði um 3,4 prósentustig á milli ára.
Farþegar Air Iceland Connect voru tæplega 29 þúsund og fækkaði um 15% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 70,5% og jókst um 0,2 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 18% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 20% á milli ára. Herbergjanýting var 93,7% samanborið við 90,9% í september 2017. Herbergjanýtingin hækkaði á milli ára á öllum hótelum félagsins.
ICELANDAIR | SEP 18 | SEP 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 427.100 | 421.359 | 1% | 3.245.210 | 3.247.809 | 0% |
Sætanýting | 81,0% | 81,1% | -0,1 %-stig | 81,2% | 83,5% | -2,2 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.703,0 | 1.651,3 | 3% | 12.665,8 | 12.107,4 | 5% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 1.380,2 | 1.339,3 | 3% | 10.289,2 | 10.105,6 | 2% |
Meðal flugleið (KM) | 3.275 | 3.138 | 4% | 3.200 | 3.071 | 4% |
AIR ICELAND CONNECT | SEP 18 | SEP 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 28.675 | 33.842 | -15% | 249.597 | 269.875 | -8% |
Sætanýting | 70,5% | 70,3% | 0,2 %-stig | 65,5% | 67,8% | -2,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 15,5 | 20,7 | -25% | 147,6 | 165,4 | -11% |
LEIGUFLUG | SEP 18 | SEP 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | 100,0% | -9,1 %-stig | 92,9% | 97,4% | -4,5 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.718 | 2.309 | 18% | 26.012 | 19.903 | 31% |
FRAKTFLUTNINGAR | SEP 18 | SEP 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 11.231 | 10.286 | 9% | 92.446 | 86.310 | 7% |
HÓTEL | SEP 18 | SEP 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 33.592 | 27.960 | 20% | 308.720 | 288.826 | 7% |
Seldar gistinætur | 31.482 | 25.403 | 24% | 250.984 | 238.074 | 5% |
Herbergjanýting | 93,7% | 90,9% | 2,9 %-stig | 81,3% | 82,4% | -1,1 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010