Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2019 og næstu þrjú ár




Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2019 og næstu þrjú ár þar á eftir er lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag.

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að tekjur nemi 12.224 m.kr., gjöld fyrir fjármagnsliði nemi 11.020 m.kr. og fjármagnsliðir 620 m.kr.

Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 559 m.kr. Áætlað er að framkvæmdir nemi 1.820 m.kr. og að íbúum fjölgi um tæplega 5 % milli ára.

Áætlunin gerir ráð fyrir að framlegð verði 13 % og að veltufé frá rekstri verði jákvætt um 1.352 m.kr. eða um 11 %.  Gert er ráð fyrir að skuldir sem hlutfall af tekjum muni lækka og að skuldaviðmið skv. sveitastjórnarlögum verði 99,5 % í árslok 2019.


Nánari upplýsingar veita:

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 525 6700.

Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar, s. 840-1244, arnar@mos.is.


Viðhengi


Attachments

Drög að fjárhagsáætlun 2019-2022 til fyrri umræðu