Kvika banki hf.: Útboð á víxlum 12. desember 2018


Kvika banki hf. heldur útboð á víxlum bankans miðvikudaginn 12. desember 2018.

Í boði eru víxlar í 6 mánaða flokknum KVB 19 0620 að nafnvirði 2.000 m. kr. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæstu samþykktu flötu vextir) ræður söluverðinu. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m. kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 miðvikudaginn 12. desember 2018. Uppgjörsdagur er 20. desember 2018.

Hægt er að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með tölvupósti á vixlar@kvika.is til að fá nánari upplýsingar.