Hluthafafundur Eikar fasteignafélags hf. var haldinn miðvikudaginn 12. desember 2018 kl. 10:00 í fundarsalnum Rímu A í Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.
Tillögur stjórnar sem lágu fyrir fundinum má finna á www.eik.is/fjarfestar/hluthafar.
- Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins
Hluthafafundur samþykkti breytingar á samþykktum félagsins, eins og þær voru lagðar fyrir fundinn.
- Tillaga að starfsreglum tilnefningarnefndar
Samþykktar voru starfsreglur fyrir tilnefningarnefnd félagsins.
- Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd
Að tillögu stjórnar var kjöri tilnefningarnefndar frestað til nýs hluthafafundar.
- Ákvörðun um þóknun til tilnefningarnefndar
Samþykkt var tillaga stjórnar um þóknun til tilnefningarnefndar.
- Heimild til kaupa á eigin hlutum
Samþykkt var tillaga stjórnar um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum.
- Önnur mál löglega fram borin
Engin önnur mál voru fram borin.