Origo hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


REYKJAVÍK - 28. janúar 2019


Origo hf. (ORIGO) keypti í síðustu viku alls 1.408.615. eigin hluti fyrir kr. 34.016.655 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Origo eftir viðskipti
21.1.201915:00  281.723  23,65  6.662.749   6.184.264 
22.1.201909:33  281.723  23,725  6.683.878   6.465.987 
23.1.201914:02  281.723  23,725  6.683.878   6.747.710 
24.1.201909:52  200.000  24,5  4.900.000   6.947.710 
24.1.201913:56  81.723  25  2.043.075   7.029.433 
25.1.201909:36  281.723  25  7.043.075   7.311.156 
Samtals   1.408.615     34.016.655   

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt var af stjórn félagsins þann 11. desember síðastliðinn sbr. tilkynningu til Kauphallar sama dag.

Origo hefur nú keypt samtals 7.151.173 hluti, sem samsvarar 61,65% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 175.448.928. Origo á nú samtals 1,57% af heildarhlutafé félagsins sem er 465.303.309, en fyrir átti félagið 5.902.541 hlut.

Samkvæmt endurkaupaáætlunni verða að hámarki keyptir 11.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 7. mars 2019. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.