Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - Innborgun á höfuðstól / Greiðsla vaxtaauka


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. febrúar næstkomandi. Sjóðurinn mun því föstudaginn 15. febrúar 2019 greiða alls 375.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði. Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 mun útgefandi greiða vaxtaauka vegna ársins 2018 föstudaginn 15. febrúar næstkomandi, samtals 18.606.665,- króna. 

Nánari upplýsingar veitir Júpíter rekstrarfélag hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.