Icelandair Group tekur þrjár Boeing 737 MAX 8 vélar úr rekstri



Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flugvélar sínar úr rekstri um óákveðinn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri.
Félagið fylgist náið með þróun mála og vinnur áfram með flugmálayfirvöldum á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum varðandi næstu skref. Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir, þá öryggisferla sem félagið fylgir, sem og þjálfun áhafna þess, telur félagið vélarnar öruggar.
Til skamms tíma mun þessi ráðstöfun hafa óveruleg áhrif á rekstur félagsins þar sem aðeins er um 3 vélar að ræða af 33 farþegavélum í flota félagsins og því hefur félagið svigrúm til að bregðast við á næstu vikum.


Frekari upplýsingar veitir:
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Sími 5050300
Netfang: bogi@icelandairgroup.is