Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing, fagfjárfestasjóður í rekstri Júpíter rekstrarfélags hf., birtir leiðréttan ársreikning sinn fyrir árið 2018.
- Leiðrétta þurfti reikning sjóðsins sem birtur var 20.febrúar 2018.
- Vaxtagjöld hækka um 18.606 þús kr. samkvæmt tilkynningu sem birt var í Kauphöll þann 31.janúar 2019.
- Afkoman var því hærri og hrein eign lægri sem nemur ofangreindri tölu.
- Skekkjan nemur aðeins 0,37% af efnahagi sjóðsins.
- Hagnaður sjóðsins á árinu 2018 nam 34.721 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam 149.569 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. Það er álit endurskoðanda að ársreikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2018, fjárhagsstöðu hans 31.12.2018 og breytingu á handbæru fé á árinu 2018, í samræmi við lög um ársreikninga og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.
Nánari upplýsingar veitir Júpíter rekstrarfélag hf. í síma 522 0010
Viðhengi