VÍS gefur út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2018


Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2018. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

Með útgáfu skýrslunnar eru markaðsaðilum veittar upplýsingar sem er ætlað að auka skilning á starfsemi félagsins. Þar er fjallað um stjórnkerfi  félagsins, rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og framkvæmd áhættustýringar, innri stjórnun og eftirlitskerfi, áhættusnið og aðferðir við mat á gjaldþolsstöðu og eiginfjárstýringu.

Það er von félagsins að skýrslan veiti markaðsaðilum, viðskiptavinum félagsins og öðrum lesendum góða innsýn í rekstur félagsins.

Skýrsluna má finna í viðhengi.

 

Viðhengi


Attachments

Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2018 (SFCR)