Samsett hlutfall* var 105,8% í mars en það var 90,8% í mars 2018. Samsett hlutfall það sem af er ári er 102,2% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 99,9%.
Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í mars var 1,9% en ávöxtun frá áramótum er 4,1%.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum um 1,5 milljarð króna í tjónabætur** í mars og hefur greitt viðskiptavinum 4,2 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.
Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:
„Afkoma í vátryggingagreinum var almennt í takt við okkar áætlanir en lækkun vaxta sem notaðir eru við núvirðingu vátryggingaskuldar lækkuðu talsvert sem skýrir um 6 prósentustig hækkun á samsettu hlutfalli félagsins í mánuðinum. Lækkun ávöxtunarkröfu á markaði hafði á móti jákvæð áhrif á fjárfestingatekjur."
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri sem hlutfall af iðgjöldum.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson samskiptastjóri í síma 660 5252.