VÍS mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs eftir lokun markaða þann 2. maí næstkomandi
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 3. maí, í húsnæði félagsins, Ármúla 3, klukkan 8:30.
Á fundinum mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á íslensku og á ensku á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/ . Að auki verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur
Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson, samskiptastjóri VÍS, í netfangi fjarfestatengsl@vis.is og síma 660 5252.