Lokatillaga tilnefningarnefndar Skeljungs til hluthafafundar, sem haldinn verður þann 27. maí 2019, er að eftirfarandi frambjóðendur verði kjörnir í stjórn félagsins:
- Ata Maria Bærentsen
- Baldur Már Helgason
- Birna Ósk Einarsdóttir
- Jens Meinhard Rasmussen
- Jón Ásgeir Jóhannesson
Meðfylgjandi er uppfærð skýrsla nefndarinnar.
Framboð til stjórnar Skeljungs þurfa að berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 22. maí 2019, á tölvupóstfangið tilnefningarnefnd@skeljungur.is eða á skrifstofu Skeljungs að Borgartúni 26, Reykjavík. Notast skal við það framboðseyðublað er finna má á vefsíðu félagsins. Vinsamlegast athugið að tilnefningarnefnd getur ekki metið frekari framboð og er framangreind tillaga því lokatillaga nefndarinnar. Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á vefsíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir fundinn.
* * *
Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess rekur selur félagið áburð og og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, OrkanX og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.
Viðhengi