HB Grandi hefur selt Engey RE 1 til Murmansk Trawl Fleet í Rússlandi og verður hún afhent nýjum eigendum fyrri hluta júní mánaðar. Í tengslum við þessa sölu verður ísfisktogarinn Helga María AK 16, tekin aftur í rekstur, en henni var lagt í febrúar síðastliðnum. Skipverjum í áhöfn Engeyjar verður boðið pláss á öðrum skipum félagsins. Engey er ferskfisktogari sem var smíðaður í Tyrklandi 2017 og hefur verið gerð út af HB Granda frá því skipið kom til landsins.
Recommended Reading
-
Brim hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09 Brim hf. („BRIM“) hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09. Heildareftirspurn í skuldabréfaflokkinn nam kr....
Read More -
Brim hf. (“BRIM”) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 15. september næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum flokki BRIM 29 09. Skuldabréfaflokkurinn BRIM 29 09 er með einni...
Read More