Reginn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 24 keyptu Reginn hf. 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 56.250.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
11.6.201910:43:06500.00022,7511.375.000
12.6.201913:25:052.00022,6045.200
12.6.201913:48:58498.00022,6011.254.800
13.6.201914:26:12500.00022,4511.225.000
13.6.201915:05:12500.00022,3511.175.000
14.6.201915:24:16500.00022,3511.175.000
Samtals 2.500.000 56.250.000

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.

Reginn átti 50.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.550.000 eigin hluti eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu.

Reginn hefur keypt samtals 2.550.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 57.387.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262