Arion banki gefur út víkjandi skuldabréf í norskum krónum


Arion banki gaf í dag út skuldabréf eiginfjárþáttar 2 að fjárhæð 200 milljónir norskra króna. Skuldabréfin eru gefin út til 10 ára með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár (10NC5). Skuldabréfin, eru með fljótandi vexti 365 punkta ofan á millibankavexti í norskum krónum. Skuldabréfin teljast til eiginfjárþáttar 2 samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Útgáfa skuldabréfanna styrkir eiginfjárgrunn bankans og er áfangi í vegferð hans að ná fram hagkvæmri skipan eiginfjár. 

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta í kauphöllinni í Lúxemborg þann 9 júlí.

Nordea sá um útgáfuna fyrir hönd bankans.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Magnús Jensson, forstöðumaður fjármögnunar Arion banka, eirikur.jensson@arionbanki.is, s. 444 7468