Marel: Uppgjör annars ársfjórðungs 2019 birt 24. júlí, fjárfestafundur 25. júlí 2019


Marel hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs 2019 eftir lokun markaðar þann 24. júlí 2019.

Fundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 25. júlí 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.

Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast.

Fjárhagsdagatal

  • 3F 2019 - 23. október 2019
  • 4F 2019 - 5. febrúar 2020
  • Aðalfundur - 4. mars 2020

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992 og tvíhliða skráning hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam fór fram í júní 2019.