Bogi Nils Bogason forstjóri
„Fyrirhugað var að MAX vélarnar myndu samsvara 27% af sætaframboði félagsins á árinu 2019 og því er sú staða sem komin er upp vegna kyrrsetningar MAX vélanna fordæmalaus og hefur veruleg áhrif á rekstur og afkomu félagsins. Í þessum aðstæðum höfum við lagt höfuðáherslu á að lágmarka tjón félagsins og áhrif kyrrsetningarinnar á farþega og íslenska ferðaþjónustu með því að bæta leiguvélum við flota félagsins í sumar. Þá hefur það verið forgangsverkefni hjá okkur að tryggja flugframboð til og frá Íslandi og þannig hefur farþegum Icelandair til Íslands fjölgað um 39% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra. Þrátt fyrir þessar mótvægisaðgerðir, sem hafa komið í veg fyrir stórfelldar niðurfellingar á flugi, hefur orðið talsverð röskun á flugáætlun okkar og starfseminni allri. Þetta hefur haft áhrif á farþega okkar og valdið flóknum úrlausnarefnum innan félagsins. Starfsfólk Icelandair á mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína við mjög erfiðar aðstæður á háannatíma þar sem allir hafa lagst á eitt að leysa eins farsællega úr málum og mögulegt er.
Markmið félagsins er áfram skýrt – að bæta arðsemi og rekstur félagsins til framtíðar. Við höfum ráðist í fjölmargar aðgerðir á síðustu misserum sem eru þegar byrjaðar að skila árangri en afkoma félagsins, án þegar áætlaðra áhrifa MAX kyrrsetningarinnar, hefur batnað milli ára. EBIT er jákvætt um 25,9 milljónir USD, án þegar áætlaðra áhrifa kyrrsetningar MAX véla, og eykst á milli ára um 45,7 milljónir USD.
Þá gekk reynslumikill alþjóðlegur fjárfestir, PAR Capital Management, til liðs við hlutahafahóp félagsins í apríl og þar að auki undirrituðum við kaupsamning vegna sölu á Icelandair Hotels og tengdum fasteignum í júlí. Hvort tveggja styrkir stöðu Icelandair Group enn frekar og er mikilvæg staðfesting á góðum langtímahorfum félagsins og framtíðartækifærum í íslenskri ferðaþjónustu.“
Kynningarfundur og vefútsending 2. ágúst 2019
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 2. ágúst 2019 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, og Eva Sóley Guðbjörnsdóttir framkvæmdastjóri fjármála munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 8:30 í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/
Upplýsingar
Markaðsaðilar: Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandairgroup.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir upplýsingafulltrúi. Netfang: asdis@icelandair.is
Viðhengi