Origo hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


REYKJAVÍK - 19. ágúst 2019

Origo hf. (ORIGO) keypti í síðustu viku alls 325.398 eigin hluti fyrir kr. 8.031.851 eins og hér segir:

Origo hf. (ORIGO) keypti í síðustu viku alls 325.398 eigin hluti fyrir kr. 8.031.851 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Origo eftir viðskipti
12.8.201913:3135.39824,75     876.101    8.896.826 
15.8.201913:20105.29424,75  2.606.027    9.002.120 
15.8.201915:1039.70624,75     982.724    9.041.826 
16.8.201910:0035.09824,6      863.411    9.076.924 
16.8.201910:04109.90224,6   2.703.589    9.186.826 
Samtals 325.398    8.031.851   


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt  var af stjórn félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar 14. mars sl.

Origo hefur nú keypt samtals 7.536.857 hluti, sem samsvarar 65,59% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 177.313.351.  Origo á nú samtals 2.0% af heildarhlutafé félagsins sem er 459.600.000 en fyrir átti félagið 8.861.428 hluti.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 11.490.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2019. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.