Brim: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 40 keypti Brim hf. 6.340.106 eigin hluti að kaupverði 247.131.139 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
1.10.2019 09:33:35 2.670.053 39,0 104.132.067
2.10.2019 09:32:57 2.670.053 39,1 104.399.072
3.10.2019 14:17:54 1.000.000 38,6 38.600.000
Samtals   6.340.106   247.131.139
         

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019.

Brim átti 8.569.277 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 14.909.383 eigin hluti eða sem nemur 0,82% af útgefnum hlutum í félaginu.

Brim hefur keypt samtals 6.340.106 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,35% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 247.131.139 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 1.900.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Við útreikning á ofangreindum hlutföllum hefur ekki verið tekið tillit til áhrifa hlutafjárhækkunar sem samþykkt var á hluthafafundi þann 15. ágúst 2019 sem ekki er búið að ljúka.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri