Í viku 41 keypti Brim hf. 4.500.000 eigin hluti að kaupverði 175.300.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
9.10.2019 | 11:25:51 | 2.000.000 | 38,525 | 77.050.000 |
10.10.2019 | 09:36:15 | 2.000.000 | 39,30 | 78.600.000 |
10.10.2019 | 09:43:51 | 500.000 | 39,30 | 19.650.000 |
Samtals | 4.500.000 | 175.300.000 | ||
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019.
Brim átti 14.909.383 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 19.409.383 eigin hluti eða sem nemur 1,07% af útgefnum hlutum í félaginu.
Brim hefur keypt samtals 10.840.106 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,59% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 422.431.139 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 1.900.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Við útreikning á ofangreindum hlutföllum hefur ekki verið tekið tillit til áhrifa hlutafjárhækkunar sem samþykkt var á hluthafafundi þann 15. ágúst 2019 sem ekki er búið að ljúka.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri