Marel: Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2019 birt 23. október, fjárfestafundur 24. október 2019


Marel hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2019 eftir lokun markaðar þann 23. október 2019.

Fundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 24. október 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.

Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 8007520
  • NL: +31 207219496
  • UK: +44 3333009269
  • US: +1 8335268347

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á 15% hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.