Kvika banki hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Kviku banka hf. þann 14. mars 2019 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 184.499.630 hluti í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun.

Á grundvelli þeirrar samþykktar ákvað stjórn Kviku þann 29. ágúst s.l. að koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd kaupa á allt að 50.000.000 eigin hlutum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans. Útgefið hlutafé í lok dags 18. október 2019 nam 1.927.449.104 kr. og tekur endurkaupaáætlunin því til 2,6% af útgefnu hlutafé, en í dag á Kvika á enga eigin hluti.

Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar ákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Kviku. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu undangenginna 20 viðskiptadaga og skal hámarksverð í kaupum vera verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í Kauphöll Nasdaq Iceland. Endurkaupaáætlunin er í gildi til frá 21. október til 14. febrúar 2020 eða þar til endurkaupum á 50.000.000 eigin hluta er lokið, hvort sem gerist fyrr.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunin verða tilkynnt í samræmi við lög og reglur.