Brim: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 42 keypti Brim hf. 2.985.553 eigin hluti að kaupverði 115.520.305 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
15.10.201911:37:572.670.05338,775103.531.305
16.10.201914:39:0015.50038,00589.000
16.10.201915:18:23300.00038,0011.400.000
Samtals 2.985.553 115.520.305
     

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019.

Brim átti 19.409.383 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 22.394.936 eigin hluti eða sem nemur 1,14% af útgefnum hlutum í félaginu.

Brim hefur keypt samtals 13.825.659 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,71% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 537.951.444 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,56% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 1.900.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Í viku 42 var lokið við hlutafjárhækkun sem samþykkt var á hluthafafundi þann 15. ágúst 2019.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri