Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing: Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. nóvember næstkomandi. Sjóðurinn mun því föstudaginn 15. nóvember 2019 greiða alls 40.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Júpíter rekstrarfélag hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.