Í viku 44 keypti Brim hf. 3.170.053 eigin hluti að kaupverði 119.890.249 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28.10.2019 | 10:50:45 | 500.000 | 38,150 | 19.075.000 |
30.10.2019 | 12:41:56 | 500.000 | 37,900 | 18.950.000 |
30.10.2019 | 15:11:28 | 2.170.053 | 37,725 | 81.865.249 |
Samtals | 3.170.053 | 119.890.249 | ||
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019.
Brim átti 23.644.936 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 26.814.989 eigin hluti eða sem nemur 1,37% af útgefnum hlutum í félaginu.
Þann 21.10.2019 var tillkynnt um að Brim hefði gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum, samkomulagið er háð venjulegum fyrirvörum þ.a.m. samþykki stjórnar. Hluti kaupverðsins verði greiddur með eigin bréfum að nafnverði 22.079.436 eða 1,13% af heildarhlutafé.
Brim hefur keypt samtals 18.245.712 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,93% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 705.404.194 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,56% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 1.900.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri