Festi hf: Niðurstaða tilboða um kaup á eigin hlutum


Niðurstöður um kaup á eigin hlutum með tilboðs fyrirkomulagi

Stjórn Festi hf. ákvað að taka tilboðum fyrir kr. 1.000.000 að nafnverði á genginu 130,95 í endurkaupum sem tilkynnt var um fimmtudaginn 7. nóvember 2019

Uppgjörsdagur verður 15. nóvember 2019.

Festi birti árshlutauppgjör þriðja ársfjórðungs 2019 þann 6. nóvember 2019.

Endurkaupin eru framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um verðbréfaviðskipti nr. 103/2007.

Nánari upplýsingar veitir

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri

eggert@festi.is

GlobeNewswire

Recommended Reading