Festi hf.: Breytingar á framkvæmdastjórn


 Pétur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi hf, og Festi hf hafa gert samkomulag um starfslok Péturs hjá félaginu.

Pétur hefur starfað hjá N1 og Festi í 12 ár, fyrstu árin við greiningar og hagdeildarstörf og síðar deildarstjóri hagdeildar og rekstrareftirlits frá 2011 og sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs frá árinu 2015.

„Ég vil nota tækifærið og þakka Pétri fyrir frábært samstarf og þann árangur sem hann hefur sýnt í störfum sínum fyrir Festi og jafnframt óska ég honum alls velfarnaðar í framtíðinni,“ segir Eggert 

 Kristófersson, forstjóri Festi. Hann mun gegna starfinu tímabundið en starf framkvæmdastjóra fjármálsviðs Festi verður auglýst á næstu dögum.

GlobeNewswire

Recommended Reading