Í viku 47 keypti Brim hf. 7.840.106 eigin hluti að kaupverði 313.604.240 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
18.11.2019 | 10:11:30 | 2.500.000 | 40,000 | 100.000.000 |
19.11.2019 | 09:38:12 | 2.670.053 | 40,000 | 106.802.120 |
20.11.2019 | 10:24:42 | 2.670.053 | 40,000 | 106.802.120 |
Samtals | 7.840.106 | 313.604.240 | ||
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019.
Brim átti 31.814.989 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 39.655.095 eigin hluti eða sem nemur 1,627% af útgefnum hlutum í félaginu.
Þann 21.10.2019 var tillkynnt um að Brim hefði gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum, samkomulagið er háð venjulegum fyrirvörum þ.a.m. samþykki stjórnar. Hluti kaupverðsins verði greiddur með eigin bréfum að nafnverði 22.079.436 eða 1,13% af heildarhlutafé.
Brim hefur keypt samtals 31.085.818 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,59% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.217.608.434 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,56% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 1.900.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri