Hagar hf. endurnýja samning við Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt


Hagar hf. hafa í dag endurnýjað samning við Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Högum í Kauphöll Íslands NASDAQ OMX Iceland. Eldri samningur er frá nóvember 2019.

Samningurinn kveður á um að Íslandsbanki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af félaginu í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal að lágmarki nema kr. 300.000 að nafnvirði á gengi sem Íslandsbanki ákveður hverju sinni, þó ekki með meira en 3% fráviki frá síðasta viðskiptaverði. Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða er 1,5%.

Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða felld niður af hálfu Íslandsbanka. Eigi Íslandsbanki viðskipti með bréf félagsins fyrir 75.000.000 kr. að markaðsvirði eða meira í sjálfvirkri pörun innan dags, sem fer um veltubók Íslandsbanka (eigin viðskipti bankans), falla niður skyldur um hámarksverðbil kaup- og sölutilboða innan þess dags.

Samningurinn er ótímabundinn og gildir frá og með 14. febrúar 2020. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.