VÍS mun birta ársuppgjör sitt eftir lokun markaðar þann 27. febrúar næstkomandi.
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 28. febrúar, í húsnæði félagsins, Ármúla 3, kl. 8:30.
Á fundinum mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna ársuppgjör félagsins og svara spurningum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á íslensku og á ensku á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/yfirlit-fjarfestaupplysinga/
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku af honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir samskiptastjóri VÍS, netfang fjarfestatengsl@vis.is og sími 660-5260.