Veðskuld slhf. - Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 16. mars næstkomandi. Útgefandi mun því mánudaginn 16. mars 2020 greiða alls 40.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu útgefanda síðustu vikur og mánuði. Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 mun útgefandi greiða vaxtaauka vegna ársins 2019 mánudaginn 16. mars næstkomandi, samtals 60.000.000,- króna. 

Nánari upplýsingar veitir Júpíter rekstrarfélag hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.