Festi hf.: Tilkynning frá Arion banka vegna samnings um viðskiptavakt


Festi hefur borist tilkynning frá Arion banka sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins um að bankinn muni beita heimild í samningi um viðskiptavakt sem heimilar að víkja frá skilyrðum samningsins í óviðráðanlegum aðstæðum. Að mati bankans eru aðstæður fyrir hendi sem réttlæta að viðskiptavaka sé heimilt að virkja umrætt ákvæði samningsins. Af þeirri ástæðu mun viðskiptavaka ekki vera unnt að beita ákvæðum samningsins um verðbil og fjárhæðir á meðan þetta ástand varir.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf., (eggert@festi.is)