Festi hf.: Tilkynning frá Íslandsbanka vegna samnings um viðskiptavakt


Festi hefur borist tilkynning frá Íslandsbanka sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins um að bankinn muni beita heimild í samningi um viðskiptavakt sem heimilar að víkja frá skilyrðum samningsins í óviðráðanlegum aðstæðum, hvað varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf., (eggert@festi.is)