Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 11. viku 2020 keyptu Hagar hf. 1.948.488 eigin hluti fyrir kr. 87.032.464 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
10.03.2020 13:07 649.496 45,25 29.389.694 27.532.801
11.03.2020 13:42 50.286 46,15 2.320.699 27.583.087
11.03.2020 14:41 599.210 46,15 27.653.542 28.182.297
12.03.2020 09:39 649.496 42,60 27.668.530 28.831.793
Samtals 1.948.488 87.032.464

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. febrúar 2020, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. febrúar 2020.

Hagar hafa keypt samtals 5.845.464 hluti í félaginu sem samsvarar 5,94% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 268.303.975 sem samsvarar 53,66% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 2,38% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 98.347.055 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.