Festi hf.: vegna stjórnarkjörs í Festi


Kópavogur, 18. mars 2020

Stjórn Festi hf. vísar til áður boðaðs aðalfundar sem haldinn verður mánudaginn 23. mars 2020 klukkan 10:00 á aðalskrifstofu félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.

Framboðsfrestur til stjórnar félagsins er nú útrunnin. Hafa borist átta framboð og metur stjórn alla frambjóðendur fullnægja þeim skilyrðum sem gerð eru til stjórnarmanna. Nánar til tekið hafa eftirfarandi boðið sig fram til stjórnar Festi:

  • Guðjón Reynisson
  • Guðmundur Páll Gíslason
  • Jón Gunnar Borgþórsson
  • Kristín Guðmundsdóttir
  • Margrét Guðmundsdóttir
  • Már Wolfgang Mixa
  • Þórey G. Guðmundsdóttir
  • Þórður Már Jóhannesson

Tilnefningarnefnd leggur til að Guðjón, Kristín, Margrét, Þórey og Þórður skipi stjórn félagsins.

Samkvæmt samþykktum Festi skal hlutfall hvors kyns í stjórn félagsins vera að lágmarki 40%.

Samkvæmt samþykktum Festi eiga hluthafar rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör í tvo sólarhringa frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, ef ekki er sjálfkjörið. Frestur til að krefjast margfeldiskosningar rennur því út kl. 17:00 eftirmiðdags 20. mars 2020. Þurf 10% hluthafa að krefjast slíkrar kosningar.

Stjórn Festi hf.