Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2019. Helstu niðurstöður voru þessar:
Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:
„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu 2019 og skilaði félagið góðum hagnaði. Ávöxtun sjóða félagsins var almennt mjög góð og er ánægjulegt að sjá þann mikla fjölda einstaklinga og fyrirtækja sem treysta Landsbréfum til að ávaxta fjármuni sína. Það hlutverk taka Landsbréf alvarlega og munum við halda áfram að leggja metnað okkar í að ávaxta fjármuni viðskiptavina okkar á ábyrgan hátt. Jafnframt munum við hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspegla það í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, en þar má sem fyrr finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“
Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.
Viðhengi