Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2020


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn þriðjudaginn 9. júní 2020.

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við tilnefningarnefnd í aðdraganda aðalfundar 2020 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en kl. 16:00 þann 14. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is.

Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en kl. 16:00 þann 30. apríl 2020 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má í viðhengi og á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018.

Auk framboðseyðublaðs má í viðhengi finna nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. Upplýsingarnar má einnig finna á vefsíðu Haga hf., www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur.

Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 19. maí nk.

Tilnefningarnefnd Haga hf.

Viðhengi


Attachments

Framboð til stjórnarsetu 2020 - eyðublað ritfært Viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum