Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2020 eftir lokun markaða miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi.
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 2020 og fer hann fram í gegnum fjarfundarbúnað vegna samkomubanns. Fundurinn hefst kl. 08:30 og er skráning á fundinn á https://origo.zoom.us/webinar/register/WN_w0sFeBWPRRuA3qBaU89JTg
Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/fjarfestatengsl