Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 18. viku 2020 keyptu Hagar hf. 1.298.992 eigin hluti fyrir kr. 61.052.624 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
27.04.2020 13:57 649.496 47,70 30.980.959 32.059.777
30.04.2020 13:59 649.496 46,30 30.071.665 32.709.273
Samtals 1.298.992 61.052.624

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. febrúar 2020, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. febrúar 2020.

Hagar hafa keypt samtals 9.722.944 hluti í félaginu sem samsvarar 9,89% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 450.012.291 sem samsvarar 90,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 2,70% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 98.347.055 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.