Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og lok endurkaupaáætlunar.


Í 19. viku 2020 keyptu Hagar hf. enga eigin hluti. Stjórn félagsins hefur tekið þá ákvörðun að ljúka endurkaupaáætlun sem hrint var í framkvæmd 28. febrúar 2020, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. febrúar 2020.

Hagar keyptu samtals 9.722.944 hluti í félaginu sem samsvarar 9,89% af þeim eigin hlutum sem að hámarki mátti kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nam samtals kr. 450.012.291 sem samsvarar 90,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki var heimilt að kaupa fyrir samkvæmt áætluninni. Hagar eiga nú samtals 2,70% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni mátti heildarkaupverð ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna, með þeim fyrirvara að ekki yrðu keyptir fleiri en 98.347.055 hlutir. Áætlunin var í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup yrði uppfyllt fyrir þann tíma. Eins og áður segir hefur stjórn nú tekið ákvörðun um að ljúka endurkaupaáætluninni fyrr en upphaflega var áætlað. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf voru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.