Hagar hf. birta ársuppgjör sitt fyrir tímabilið 1. mars 2019 til 29. febrúar 2020, eftir lokun markaða, mánudaginn 18. maí nk.
Rafrænn kynningarfundur 19. maí kl. 08:30
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður einungis rafrænn, vegna óvenjulegra aðstæðna og samkomubanns. Kynningunni verður varpað í gegnum netið á slóðinni https://livestream.com/accounts/11153656/events/9126670/player þar sem Finnur Árnason, forstjóri Haga, mun kynna afkomu félagsins fyrir síðasta rekstrarár.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.