Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu í skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 13. maí 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 15. maí 2020.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.   

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 3.653.600.000 á bilinu 1,28% - 1,38%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.613.600.000 á ávöxtunarkröfunni 1,33%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 134.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,33% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 2.747.600.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 59.451.152.565 en er nú ISK 62.198.752.565.

Ekki bárust tilboð í viðbótarútgáfu í flokki LSS151155.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is