Aðalfundur Haga hf. 9. júní 2020 – endanleg dagskrá og tillögur


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn þriðjudaginn 9. júní 2020 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. skal tveimur vikum fyrir aðalfund birta dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikning, skýrslu stjórnar og skýrslu endurskoðenda, auk tillagna félagsstjórnar um starfskjarastefnu.

Dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2020 eru óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins þann 18. maí sl. Nánari upplýsingar má einnig finna á vefsíðu félagsins http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur/.

Hluthöfum er þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (laugardaginn 30. maí nk., kl. 09:00) á netfangið adalfundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Kann endurskoðuð dagskrá að birtast þann dag.

Hluthöfum er einnig bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en kl. 09:00 þann 4. júní nk. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund.

Þá vill stjórn minna á að samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar geta hluthafar komið með tillögu að einstaklingum sem kjósa skal í tilnefningarnefnd og skal slík skrifleg tillaga berast stjórn Haga hf. eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfund (laugardaginn 30. maí nk., kl. 09:00).

Stjórn Haga hf.