Festi hf.: Tilkynning frá Íslandsbanka samkvæmt samningi um viðskiptavakt


Þann 12. mars sl. birti Festi tilkynningu frá Íslandsbanka banka um að bankinn myndi beita heimild í samningi um viðskiptavakt sem heimilar að víkja frá skilyrðum samningsins í óviðráðanlegum aðstæðum.

Íslandsbanki hefur nú tilkynnt Festi að samkvæmt mati bankans sé ekki lengur fyrir hendi þörf á að beita ákvæði samningsins um frestun á skyldum vegna óviðráðanlegra atvika og gilda því ákvæði hans um verðbil og fjárhæðir nú að nýju.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi (eggert@festi.is) og Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi (mki@festi.is).