Í tilkynningu Alberts Jónssonar til félagsins rétt í þessu kemur fram að hann hafi ákveðið að draga framboð sitt til stjórnar Haga hf. til baka en aðalfundur félagsins fer fram þann 9. júní nk.
Eftirtaldir aðilar eru þá í framboði til stjórnar félagsins á fundinum, sbr. tilkynningu fyrr í dag:
- Davíð Harðarson (f. 1976), fjármálastjóri Nordic Visitor
- Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), forstjóri Slippsins á Akureyri
- Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður hjá LMB Mandat slf.
- Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969), ráðgjafi hjá Valcon consulting
- Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962), eigandi Kría konsulting ehf.
- Rósalind Guðmundsdóttir (f. 1976), framkvæmdastjóri Vélsmiðju Guðmundar ehf.
Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum.
Stjórn Haga hf.