Að loknum aðalfundi Haga hf., sem haldinn var þann 9. júní 2020, hélt nýkjörin stjórn sinn fyrsta stjórnarfund þar sem stjórnarformaður og varaformaður voru kjörnir. Auk þess voru undirnefndir stjórnar kjörnar.
Niðurstaða er sem hér segir:
Stjórnarformaður: Davíð Harðarson
Varaformaður: Eiríkur S. Jóhannsson
Aðrir í stjórn Haga eru: Eva Bryndís Helgadóttir, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir.
Formaður endurskoðunarnefndar: Anna Þórðardóttir
Aðrir í endurskoðunarnefnd eru: Eva Bryndís Helgadóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir
Formaður starfskjaranefndar: Jensína Kristín Böðvarsdóttir
Aðrir í starfskjaranefnd eru: Davíð Harðarson og Eiríkur S. Jóhannsson