Brim: Kynning á uppgjöri annars ársfjórðungs


Brim mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða fimmtudaginn 20. ágúst.
Kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 21. ágúst klukkan 8:30. Í ljósi aðstæðna fer hann eingöngu fram í gegnum fjarfundarbúnað. Hægt er að sækja um aðgang að fundinum á póstfangið kynning@brim.is.

Kristján Þ. Davíðsson stjórnarformaður mun kynna uppgjörið og svara spurningum.